Það sem af er degi hefur hlutabréfaverð í Vátryggingafélagi Íslands lækkaðu um 3,82% í 54 milljóna króna viðskiptum.
Í gær greindi Viðskiptablaðið frá því að félagið hafi sent frá sér afkomuviðvörun vegna mikils aukins tjónaþunga á tímabilinu og stórs bruna í Perlunni.
Uppfærð 12 mánaða afkomuspá verður birt með uppgjöri annars ársfjórðungs þann 22. ágúst næstkomandi.