Nasdaq (NASDAQ:NDAQ) tilkynnir í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 10 vísitölunni (Nasdaq Iceland: OMXI10), sem gerð er tvisvar á ári. Þetta kemur fram í tilkynninu til Kauphallarinnar.

Endurskoðuð samsetning tekur gildi 1. júlí 2019. Eins og áður hefur verið tilkynnt fjölgar félögum í vísitölunni á þessum tímamótum úr 8 í 10. Vátryggingafélag Íslands hf. (VIS) og Sjóvá-Almennar tryggingar (SJOVA) eru ný fyrirtæki í vísitölunni.

Samsetning OMXI10 vísitölunnar frá og með 1. júlí 2019 verður því eftirfarandi:

- Eik fasteignafélag hf. (EIK)
- Festi hf. (FESTI)
- Hagar hf. (HAGA)
- Icelandair Group hf. (ICEAIR)
- Marel hf. (MAREL)
- Reginn hf. (REGINN)
- Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
- Síminn hf. (SIMINN)
- Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (SJOVA)
- Vátryggingafélag Íslands hf. (VIS)

OMX Iceland 10 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim tíu félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 10 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni.