Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði um 16% frá útboði á fyrsta viðskiptadegi með bréfin í Kauphöllinni. Félagið var skráð á markað í dag. Gengi bréfa í útboði með bréfin sem lauk í vikunni nam 7,95 krónum á hlut og fór það hæst í 9,32 krónur á hlut.

Gengi hlutabréfa VÍS endaði í 9,22 krónum á hlut. Fram kemur í upplýsingum frá Kauphöllinni að heildarvelta með hlutabréfin námu 1.464.996.442 króna í 194 viðskiptum. Miðað við þetta nemur markaðsverðmæti VÍS 23 milljörðum króna.