Vátryggingafélag Íslands (VÍS) hefur valið SAP fjárhagslausn frá Applicon til að annast fjárhagsbókhald, utanumhald um viðskiptamenn, kröfur og einnig fjárhagsáætlanagerð. SAP er ætlað að leysa af hólmi eldra kerfi VÍS og koma til móts við nýjar og breyttar áherslur þar sem meiri áhersla er lögð á skilvirkni við upplýsingagjöf og skýrslugerð.

„Það er ánægjulegt að VÍS hafi eftir ítarlega skoðun valið SAP sem sýnir að lausnin hentar vel krefjandi rekstri tryggingafélaga, þar sem mikil áhersla er lögð á skilvirkni í fjárhagsuppgjöri og afkomugreiningu,“ segir Kristján Jóhannsson framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi í tilkynningu frá félaginu.

„Með SAP gefst fyrirtækjum einnig tækifæri á að nálgast mikilvægar upplýsingar úr rekstri eins og uppgjör eftir mismunandi víddum og aðrar mikilvægar lykiltölur.“