Ritstjórar Markaðarins vísa á bug ummælum Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns í Morgunblaðinu í dag, þess efnis, að núverandi forsvarsmenn Eimskips hafi rekið ófrægingarherferð gegn Baldri Guðnasyni í gegnum Markaðinn á Stöð 2 þar sem sonur Sindra Sindrasonar vinni.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„ Ritstjórar Markaðarins hafna með öllu ómálefnalegum dylgjum sem birtast i ummælum Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns í Morgunblaðinu í dag. Sömu fréttalegu sjónarmið liggja til grundvallar fréttum Markaðariarans á Stöð 2 og Fréttablaðinu af málefnum Eimskips og öðrum fréttum af viðskiptum og efnahagsmálum og stjórnarformaður Eimskips kemur þar vitaskuld hvergi nærri.

Sindri Sindrason, viðskiptafréttamaður Markaðarins, nýtur fyllsta trausts í störfum sínum og ummæli þess efnis að Markaðurinn á Stöð 2 taki þátt í ófrægingarherferð gegn Baldri Guðnasyni dæma sig auðvitað sjálf.

Markaðurinn frábiður sér að taka á nokkurn þátt í því moldviðri sem nú geysar í kringum Eimskipafélag Íslands og stjórnendur þess, bæði núverandi og fyrrverandi, en mun áfram hafa forystu um fréttaflutning af því."

Undir þetta rita þeir Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson.