Kortavelta í október nam 24,9 milljörðum króna og var 7,5% meiri velta í krónum talið en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun. „Einkaneysla virðist heldur hafa rétt úr kútnum á haustmánuðum frá sama tímabili í fyrra, ef marka má kortaveltutölur. Þó er einkaneyslan enn til muna minni en raunin var fyrir hrun,“ segir í morgunkorni Íslandsbanka sem fjallar um veltuna í dag.

Debetkortavelta dregst saman

„Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 6,6% milli ára. Má þakka það fyrst og fremst nærri 40% raunaukningu í erlendri kortaveltu á milli ára, en innlend kreditkortavelta jókst aðeins um ríflega 1% á sama tíma. Nokkuð önnur þróun varð hins vegar á debetkortaveltu, en debetkortavelta í innlendum verslunum nam 17,9 milljörðum kóna í október og dróst saman að raungildi um tæplega 3% frá sama mánuði í fyrra.“

Greiningin segir að samanlögð raunbreyting kredit- og debetkortaveltu í innlendum verslunum gefi góða mynd af þróun einkaneyslu hérlendis. „Á þann kvarða jókst kortavelta um 2,4% að raungildi í október frá sama mánuði í fyrra. Er það þriðji mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti.“

Segir að aukningin sé vísbending um að heimilin séu heldur að auka við sig neyslu, eftir að hafa hert beltin verulega undanfarin tvö ár. „Ekki er þó loku fyrir það skotið að aftur slái í bakseglin með þessa þróun þegar sér fyrir endann á ýmsum tímabundnum úrræðum á borð við útgreiðslur séreignarsparnaðar, greiðslufrí bifreiðalána og frystingar íbúðalána. Hins vegar er kaupmáttur launa tekinn að mjakast upp á við eftir mikinn samdrátt undanfarið og gæti það hjálpað til að styðja við einkaneysluna á næstu mánuðum og misserum.“