Samkvæmt bráðabirgðatölum fjármálaráðuneytisins var verðmæti innfluttrar vöru í desember 32,5 ma.kr. sem er nokkuð minni innflutningur en í nóvember þegar hann nam 40,6 ma.kr. Fyrstu vísbendingar eru um að útflutningur vöru hafi aukist töluvert í desember en hann nam 43,2 ma.kr. í nóvember að því er kemur fram í vefriti ráðuneytisins.

Vegna tæknilegra vandamála hefur Hagstofa Íslands enn ekki birt bráðabirgðaniðurstöður sínar fyrir desember og verða þær birtar á vef stofnunarinnar næstkomandi miðvikudag. Er því ekki tímabært að birta nákvæmar upplýsingar varðandi útflutning eða vöruskiptin í heild í desember en líklega er um verulega aukinn afgang að ræða.

Í vefritinu er bent á að hvað undirliði innflutningsins varðar er mestur samdrátturinn í innflutningi á eldsneyti og smurolíum en þessi liður er jafnan mjög sveiflukenndur á milli mánaða. Einnig er nokkur samdráttur á innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og skýrist sá samdráttur af minni innflutningi á áloxíði en sá innflutningur var mjög mikill í nóvember. Aðrir undirliðir innflutningsins í desember eru að mestu óbreyttir miðað við undanfarna mánuði.

Varðandi fyrirliggjandi vísbendingar um útflutning í desember er búist við auknum útflutningi á bæði áli og sjávarafurðum. Ekki er ólíklegt að álfyrirtækin hafi átt uppsafnaðar birgðir frá nóvember þar sem útflutningurinn var með minna móti í þeim mánuði.

Sömu sögu má segja varðandi útflutning sjávarafurða en einhverrar sölutregðu hefur gætt á erlendum mörkuðum á íslensku sjávarfangi auk þess sem verð sjávararfurða hefur lækkað. Þrátt fyrir styrkingu á meðalgengi krónunnar um 5,8% milli nóvember og desember er reiknað með að vegna aukins útflutnings hafi útflutningsverðmæti sjávarafurða verið með besta móti í desember segir í vefritinu.