Vísitala byggingakostnaðar hefur hækkað um 0,1% frá fyrra mánuði, en um miðjan júní reiknaðist hún sem 131,9 stig.

Miðast þá desember 2009 sem 100 stig. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingakostnaðar hækkað um 6,6%. Hækkuðu vinnuliðir um 0,3% frá síðasta mánuði.