Vísitala byggingarkostnaðar fyrir september 2008 er 441,3 stig.

Það er hækkun um 0,1% frá fyrri mánuði en vísitalan er reiknuð um miðjan ágúst.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 17,6% en þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í morgun.