Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan apríl 2008, er 416,5 stig samkvæmt vef Hagstofu Íslands.

Það er hækkun um 3,32% frá fyrri mánuði, sem helst má rekja til verðhækkana á efnisliðum. Vísitalan gildir í maí 2008.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 12,5%, segir á vef Hagstofu.