Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan október 2008, er 463,8 stig og hækkar um 3,6% frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 23,1%.