Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan febrúar, er 313,0 stig og lækkar um 0,10% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Vísitalan gildir fyrir mars. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 8,1%.