Vísitala byggingarkostnaðar hefur lækkað um 1% á milli mánaða miðað við gildi hennar í síðasta mánuði nýlðins árs, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Vísitalan stendur nú í 111,2 stigum og á svipuðum slóðum og í október í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar lækkaði verð á innfluttu byggingarefni um 4,2% á milli mánaða á sama tíma og verð á innlendu efni hækkaði um 0,6%.

Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 9,6% síðastliðna tólf mánuði.