Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,2% á milli mánaða í desember og stendur hún nú í 115,8 stigum. Skýringin á vísitöluhækkuninni skýrist að mestu af 0,9% verðhækkun á innfluttu byggingarefni. Vísitalan hefur hækkað um 3,1% síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Hagstofan tekur sérstaklega fram að vegna þess að innleiðing nýrrar byggingarreglugerðar standi fyrir dyrum þá vilji hún koma því á framfæri að breytingin hefur ekki verðáhrif á mælingu vísitölu byggingarkostnaðar. Bent er á að vísitala byggingarkostnaðar sé fastgrunnsvísitala sem mælir verð á aðföngum tiltekins vísitöluhúss.

Beðið eftir fyrsta vísitöluhúsinu

Orðrétt segir:

„Í nýrri byggingarreglugerð eru gerðar kröfur um breytta byggingarhætti og aukin gæði bygginga. Þessháttar gæðabreytingar eru innleiddar í vísitöluna með grunnskiptum, þar sem nýtt vísitöluhús er magntekið. Grunnskipti hafa engin áhrif til hækkunar eða lækkunar vísitölunnar. Hagstofan getur ekki hafist handa við grunnskipti fyrr en fyrir liggja húsbyggingar sem uppfylla nýja byggingarreglugerð og hægt er að nota við magntöku á nýjum grunni vísitölunnar.“