Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 0,1% milli mánaða samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni.

Hækkunin er aðallega rakin til 0,3% hækkunar vinnuliðar milli mánaðar vegna nýsamþykktra kjarasamninga málmiðnaðarmanna. Vísitala byggingarkostnaðar á síðustu 12 mánuðum hefur hækkað um 6,1%.