verkafólk
verkafólk
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júlí 2011 er 110,8 stig sem er hækkun um 0,8% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni hækkaði um 1,4%, þar af námu áhrif á vísitölu 0,4%. Verð á innlendu efni hækkaði um 0,8%, þar af námu áhrif á vísitölu 0,3% Launakostnaður hækkaði um 0,4% milli mánaða, áhrif á vísitölu námu 0,1%. Vísitalan gildir í ágúst 2011.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 8,4% af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.