Vísitalan var reiknuð um miðjan ágúst 2016 og er 131,6 stig, þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Nánast engar breytingar voru í undirliðum vísitölunnar þennan mánuðinn.

Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 2,8% á síðustu 12 mánuðum samkvæmt frétt Hagstofunnar.