Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 309 stig í júní og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði, segir greiningardeild Landsbankans og þar hefur fasteignaðverð hækka um 13,1% síðastliðna tólf mánuði.

?Undanfarna sex mánuði hefur fasteignaverðs að jafnaði hækkað um 1% og var hækkunin í júní undir því meðaltali. Hækkun vísitölu íbúðaverðs í júní gefur til kynna að enn sé töluvert líf í fasteignamarkaðnum, þó vissulega hafi hægt á. 0,6% hækkun á mánaðargrundvelli samsvarar 7,4% hækkun á ársgrundvelli," segir greiningardeildin.

Verð á sérbýli hækkaði um 1,3% á milli mánaða í júní en fjölbýli hækkaði um 0,4%. Sérbýli hefur hækkað um 10,2% það sem af er ári en fjölbýli um 4,5%.

"Ljóst er að innkoma bankanna á fasteignalánsfjármarkað og rýmri reglur um hámarkslán- og veðsetningu gerðu almenningi kleift að fjárfesta í dýrara húsnæði, en það hefur lyft upp verði á sérbýli. Þetta má greinilega sjá á því að á síðastliðnum tveimur árum hefur verð á sérbýli hækkað um tæplega 77%, en hækkun fjölbýlis á sama tímabili nemur ríflega 51%," segir greiningardeildin.