Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,1% á milli mánaða í desember í fyrra og hefur hún . Vísitalan fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,9% á milli mánaða og fyrir annan iðnað um 1,0% Á sama tíma lækkaði framleiðsluvísitalan fyrir stóriðju um 1,6% og vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,4%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,2% á milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,2%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Hagstofan bendir á síðan í desember í fyrra hafi vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,7% en verðvísitala sjávarafurða um 18,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 6,4% en matvælaverð hefur hækkað um 7,3%.

Þá er tekið fram á vef Hagstofunnar að meðalverð erlends gjaldeyris í síðasta mánuði var 1,1% hærra en í nóvember og hafði hækkað um 4,8% frá því í desember 2010.