HB Grandi
HB Grandi
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Vísitala framleiðsluverðs í júní 2011 var 218,0 stig og hækkaði um 0,5% frá maí 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 253,7 stig, sem er hækkun um 1,8% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 266,5 stig, lækkaði um 1,6%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,1% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,6% af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,7%.

Miðað við júní 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 13,0% en verðvísitala sjávarafurða um 14,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 14,1% en matvælaverð hefur hækkað um 5,8%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2011 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2009 og 2010.