Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2013 var 216,9 stig og lækkaði um 2,8% frá janúar 2013. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 262,7 stig, sem er lækkun um 3,1% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 239,7 stig, lækkaði um 2,4%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,7% en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 5,7%. Kemur þetta fram á vef Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 3,3%.

Miðað við febrúar 2012 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 0,4% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 2,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 0,2% en matvælaverð hefur hækkað um 4,1%.