Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2015 var 216,3 stig og lækkar um 2,5% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 6,6%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,4% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 4,4%. Kemur þetta fram í tölum Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,7% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 3,2%.

Miðað við júlí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 7,4% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 8,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 7,5% en verð á matvælum hækkað um 1,5%.