Vísitala framleiðsluverðs var 3,1% lægri í janúar 2008 en í janúar 2007.

Verðvísitala afurða stóriðju lækkaði á sama tíma um 16,8% en verðvísitala sjávarafurða hækkaði um 3,4%.

Verðvísitala matvælaframleiðslu hækkaði um 4,3% samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.