Vísitala framleiðsluverðs í desember 2007 var 119,5 stig og hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 131,2 stig, sem er hækkun um 2,0% frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 132,4 stig, hækkaði um 4,6%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% frá nóvember en vísitala fyrir annan iðnað um 1,7% (0,5%). Greint er frá þessu á vef Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% (0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 3,2%.

Frá desember 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,2%, verðvísitala sjávarafurða hefur hækkað um 0,7% og afurðir stóriðju lækkað um 12,6%. Matvælaverð hefur hækkað um 3,6%.