Vísitala framleiðsluverðs í maí 2008 var 147,5 stig og hækkaði um 1,1% milli mánaða.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 161,4 stig, sem er lækkun um 0,4% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 188,6 stig og hækkaði um 0,4% milli mánaða.

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,4% frá apríl en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 3,7%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,5% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 0,4%.

Frá maí 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 24,7% og verðvísitala sjávarafurða um 33,4%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 29,9% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 13,7%