Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,9% frá júlí til ágúst og var 159,6 stig, segir frétt Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 173,0 stig, sem er hækkun um 0,2% (vísitöluáhrif 0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 214,2 stig, hækkaði um 7,8% (2,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,6% frá júlí (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,4% (-0,3%). Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,3% (0,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 2,8% (1,8%). Frá ágúst 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 31,9% og verðvísitala sjávarafurða um 36,7%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 46,4% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 15,2%.