Vísitala framleiðsluverðs fyrir þriðja ársfjórðung 2006 er 121,2 stig, en það 2,0% hækkun frá öðrum ársfjórðungi, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 127,1 stig og hækkar um 5,6%, og eru vísitöluáhrifin 2,3%. Vísitala framleiðsluverðs fyrir annan iðnað er 117,3 stig og lækkar um 0,4% og eru vísitöluáhrifin -0,3%.

Vísitalan fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands er 106,3 stig, sem 2,6% hækkun frá öðrum ársfjórðungi 2006, og fyrir útfluttar afurðir 130,4 stig, 1,7% hærri en á fyrri ársfjórðungi. Vísitala framleiðsluverðs fyrir útfluttar afurðir án sjávarafurða er 135,8 stig, 4,8% lægri en í fyrri ársfjórðungi, segir í tilkynningunni.

Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,2%, launavísitala um 3,0% en meðalverð á erlendum gjaldeyri lækkaði um 1,8%.

Frá þriðja ársfjórðungi 2005 hefur vísitalan í heild hækkað um 20,9%, vísitalan fyrir sjávarafurðir um 26,2% og fyrir annan iðnað um 17,2%.