Vísitala framleiðsluverðs í september 2010 var 189,1 stig og hækkaði um 2,3% frá ágúst 2010.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 221,8 stig, sem er hækkun um 3,7% (vísitöluáhrif 1,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 221,5 stig, hækkaði um 3,8% (1,4%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,9% (-0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 3,1% (2,4%).

Miðað við september 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,4% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 0,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 3,2% en matvælaverð hefur hækkað um 0,8%.