Vísitala framleiðsluverðs í september 2008 var 165,9 stig og hækkaði um 3,9% frá ágúst.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 187,9 stig, sem er hækkun um 8,6% (vísitöluáhrif 2,8%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 217,3 stig, hækkaði um 1,4% (0,4%).

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,5% frá ágúst (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,4%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 5,4% (3,5%).

Á vef Hagstofunnar kemur fram að frá september 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 39,6% og verðvísitala sjávarafurða um 47,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 62% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 15,9%.