Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2008 var 145,9 stig og hækkaði um 6,3% frá mars 2008.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 162,0 stig, sem er hækkun um 3,2% (vísitöluáhrif 1,1%) frá fyrri mánuði en mest hækkar vísitala fyrir stóriðju sem var 187,9 stig og hækkar um 11,7% (2,7%).

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 6,3% frá mars (1,0%), aðallega vegna verðhækkunar mjólkurafurða. Vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 5,6% (1,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 6,7% (2,4%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 6,1% (3,9%).

Frá apríl 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 20,3% og verðvísitala sjávarafurða um 28,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 27,8% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 12,1%.