Vísitala framleiðsluverðs í maí 2007 er 118,3 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 2,4% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 121,0 stig og lækkaði um 4,2% (vísitöluáhrif -1,6%) og vísitala fyrir stóriðju er 145,2 stig, lækkaði um 1,2% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli var óbreytt milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,4% frá apríl (-0,6%). Á sama tíma lækkaði verð á erlendum gjaldmiðlum um 3,4%.
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 3,5% (-2,2%).
Frá maí 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 2,1%; sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 5,2%, afurðir stóriðju hafa hækkað um 3,7% og matvæli um 2,4%.