Vísitala framleiðsluverðs í september 2007 var 118,8 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 127,6 stig, sem er hækkun um 0,8% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 134,1 stig, lækkaði um 8,3% (-1,7%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,9% milli mánaða (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,0% frá ágúst (-0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hélst óbreytt milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 2,8% (-1,8%).

Frá september 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,6%, sjávarafurðir hafa haldist óbreyttar í verði,  afurðir stóriðju hafa lækkað um 4,2% og matvælaverð hefur hækkað um 3,3%.