Vísitala framleiðsluverðs í október 2007 var 115,8 stig og lækkaði um 2,5% frá fyrri mánuði, samkvæmt því sem segir á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 125,2 stig, sem er lækkun um 1,9% frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 123,6 stig, lækkaði um 7,8%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,6% milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,3% frá september.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 4,0%.

Frá október 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 3,0%, verðvísitala sjávarafurða hefur lækkað um 0,3% og afurðir stóriðju um 10,0%. Matvælaverð hefur hækkað um 4,0%.