Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2008 var 121,9 stig og hækkaði um 2,0% frá fyrri mánuði.

Þá var vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 135,2 stig, sem er hækkun um 3,1% frá fyrri mánuði en vísitöluáhrif eru 1,1%.

Vísitala fyrir stóriðju var 131,3 stig, lækkaði um 0,8%.

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,4% frá desember en vísitala fyrir annan iðnað um 3,3% (0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,9% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 1,5%.

Frá janúar 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 3,1%, verðvísitala sjávarafurða hefur hækkað um 3,4% og afurðir stóriðju lækkað um 16,8%. Matvælaverð hefur hækkað um 4,3%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.