Vísitala framleiðsluverðs fyrir stóriðju hækkar um 4,1% á milli mánaða. Frá janúar 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 22,4%, þar af 42,0% fyrir stóriðju.

Nú er í fyrsta sinn birt mánaðarleg vísitala framleiðsluverðs og er hún reiknuð aftur til 4. ársfjórðungs 2005. Nýjar undirvísitölur eru nú birtar fyrir matvælaframleiðslu, stóriðju, útfluttar afurðir án sjávarafurða og loks fyrir útfluttar afurðir án sjávarafurða og stóriðju.