Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2007 var 121,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 4,8% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 126,6 stig, sem er hækkun um 5,7% (vísitöluáhrif 2,1%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 146,3 stig, hækkaði um 9,1% (1,8%) að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% milli mánaða (0,0%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 3,5% frá júlí (0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,7% (0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 7,3% (4,6%).

Frá ágúst 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 0,2%, sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 1,0%, afurðir stóriðju um 2,1% og matvælaverð hefur hækkað um 2,2%.