Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 314,1 stig í ágúst og hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamati ríkisins).

Þannig hækkar vísitalan nú annan mánuðinn í röð en í júlí hækkaði vísitalan í fyrsta skipti í 12 mánuði, eða frá því í júlí í fyrra.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á þessu ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Í raun hefur íbúðaverð lækkað töluvert frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum) en síðan þá hefur íbúðaverð lækkað um tæp 12%. Þangað til í júlí á þessu ári hafði íbúðaverð þannig aðeins hækkað tvisvar milli mánaða á hálfu öðru ári.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitala íbúðaverðs um 0,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 6,4% og lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 10,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.