Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 844,0 stig í febrúar síðastliðnum og hækkaði um 2,5% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 22,5%. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár , en vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs..

„Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði,“ er útskýrt í frétt Þjóðskrár.

Þróun á gengi vísitölu íbúðaverðs frá upphafi mælinga árið 1994 má sjá hér að neðan: