Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 321,8 stig í ágúst sl. og hækkaði um 0,3% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Vísitala íbúðaverðs lækkaði lítillega í júlí en hafði fram að því hækkað sex mánuði í röð. Hækkunin á milli ára nemur nú 6,3%. Þá hefur það jafnframt ekki gerst síðan haustið 2007 að vísitalan hafi hækkað sex mánuði í röð en hækkun vísitölunnar í maí sl. var sú mesta síðan í október 2007.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitalan lækkað nokkuð frá miðju ári 2008 en frá því að íbúðaverð náði hámarki í janúar 2008 hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 10% á föstu verðlagi. Vísitala íbúðaverðs hefur þó ekki mælst jafn há og nú síðan í mars 2009.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,7% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 4,4%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.