Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 336,4 stig í maí og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Vísitala íbúðaverðs sl. 3 ár.
Vísitala íbúðaverðs sl. 3 ár.
© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitalan hækkað umtalsvert frá því í nóvember 2010.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% en síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,1%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.