Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 448,5 stig í desember 2015, miðað við að í janúar 1994 var vísitalan 100 stig. Þá hækkaði vísitalan um 1,4% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Þjóðskrár.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli.

Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.