Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 411,9 stig í desember og hækkaði um 2% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hann hún hækkað um 5,7% og á síðustu 12 mánuðum hefur vísitalan hækkaði um 9,6%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Birting hennar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.