Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 332,2 stig í febrúar sl. og lækkaði um 0,2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er í fyrsta sinn í sjö mánuði sem vísitalan lækkar á milli mánaða en vísitala íbúðaverðs hefur nú hækkað um 7,8% á milli ára að nafnvirði. Á síðustu 14 mánuðum hefur vísitalan aðeins lækkað tvisvar á milli mánaða, í júlí sl. og nú í febrúar.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má er vísitalan í svipuðum hæðum og hún var í byrjun árs 2009. Síðan þá hefur hún að vísu tekið mikla dýfu niður á við og fór lægst í lok árs 2009. Frá því að íbúðaverð náði hámarki, í febrúar 2008, hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 7,1% á föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Frá byrjun árs 2010 hefur vísitala hækkað um 9,5%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,8% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 3,2%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.