Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stóð í stað milli september og október, og var 401,1 stig. Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.

Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,6%. Síðustu sex mánuði hefur hún hækkað um 2% og síðasta árið um 6,6%.

Vísitala fjölbýlis er 405,3 og vísitala sérbýlis 395,7.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og því hvort það teljist sérbýli eða fjölbýli. Meðalfermetrarverð er reiknað fyrir níu flokka íbúðarhúsnæðis og niðurstaðan er vegin með hlutdeilt viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undanfarin tvö ár.