Launavísitala í nóvember 2015 er 537,6 stig og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Síðastliðna 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,7%.

Einnig voru birtar tölur um vísitölu kaupmáttar launa. Vísitalan í nóvember 2015 var 128,4 stig og hækkaði um 1,25% milli mánaða. Síðust 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,5%.