Vísitala launa stóð óbreytt í 437,7 stigum í desember. Hún hafði þá hækkað um 4,7% síðastliðna tólf mánuði á undan, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Kaupmáttarvísitalan lækkaði á sama tíma um 0,05%. Hún hafði þokast upp á við um 0,4% á sama tólf mánaða tímabili.