Launavísitalan hækkaði um 1% á milli mánaða í janúar síðastliðnum. Hún hefur hækkað um 6,7% á síðastliðnum tólf mánuðum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að vísitala kaupmáttar launa í janúar síðastliðnum var 115,5 stig og hækkaði hún um 1,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,4%.