Heildarlaunakostnaður á hverja greidda vinnustund á fjórða ársfjórðungi 2012 jókst frá fyrri ársfjórðungi um 11,9% í samgöngum, 8,5% í verslun, 7,4% í iðnaði og um 5,0% í byggingarstarfsemi, að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 4,4% í verslun, 3,8% í samgöngum, 2,0% í byggingarstarfsemi og um 1,7% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru undanskildar greiðslur sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2011 var á bilinu 2,8% til 4,5%. Mest var hækkunin í byggingarstarfsemi en minnst í verslun. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í iðnaði eða 5,7% en minnst í byggingarstarfsemi 4,2%.