Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 139,5 stig í október 2014 (janúar 2011 = 100) og hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands .

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.