Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,2% á milli mánaða í júlí. Á sama tíma lækkuðu vísitölur framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir, stóriðju og matvæli allar um 0,1%. Vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,6% á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Fram kemur á vef Hagstofunnar að vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,3% en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,1%.

Vísitala framleiðsluverðs hefur lækkað um 2,9% á milli ára, verðvísitala sjávarafurða hefur lækkað um 6,3%, verð á afurðum stóriðju lækkað um 4,5% og matvælaverð hækkað um 2,4%.